rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Kolbrúnu Baldursdóttur fyrir sína ræðu. Hún spurði: Hverju erum við tilbúin að fórna fyrir lýðheilsu barna? Það er alveg sanngjörn spurning? Hverju erum við tilbúin að fórna? En við þurfum þá líka á sama tíma að vera raunsæ og spyrja: Hvað ávinnst með þessu banni? Vitum við það að bann á bragðtegundum muni draga úr neyslu barna eða getum við dregið þá ályktun að bragðtegundirnar muni skila sér með öðrum hætti? Getum við áætlað að bann á nikótínpúðum með bragði muni auka sölu á enn skaðlegri nikótín- og tóbaksvörum eins og sígarettum? Við þurfum líka að velta fyrir okkur þegar við erum að ræða bann eins og þetta hvort mögulega sé hægt að ganga skemur heldur en að setja almennt bann. Þess vegna langar mig til að spyrja hv. þingmann örlítið út í það hvert hennar mat sé vegna þess að það er talið duga fyrir sígarettur að hafa þær til sölu en ekki sýnis en þær eru, á grundvelli þeirra rannsókna sem við erum að ræða hér, skaðlegri vara heldur en nikótínpúðar. Þá er spurningin: Eru rök fyrir því að láta strangari reglur gilda um nikótínpúða með einhverju bragði heldur en sígarettur? Væri þá ekki bara hægt að ná sömu markmiðum með því að hafa þessa nikótínpúða til sölu en ekki sýnis eins og gildir um hinar skaðlegu sígarettur?