rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur.
Virðulegi forseti. Hvað ávinnst? Getum við vitað það? Nei, við getum ekki vitað það. En viljum við taka sénsinn á því? Verðum við að vita nákvæmlega hvað mun ávinnast? Já, við munum hugsanlega bjarga þessu barni, það mun ekki skaðast. Eitt, tvö börn. Það er bara útilokað að svara spurningu sem þessari, gjörsamlega útilokað. Og eiginlega, ef ég er spurð, þá er mér bara alveg sama þó að við vitum það ekki. Ég veit það bara að við munum draga úr aðgengi barna að vörunni. Það er svo sem búið að rökstyðja það í þessu frumvarpi og í öllum þessum umsögnum. Það er náttúrlega ekki eins og þetta frumvarp hafi dottið af himnum núna í dag. Það hlýtur einhver hugsun að vera þarna að baki auk þess sem ég treysti hagsmunasamtökum barna sem eru búin að koma með sín rök líka. Síðan má hugsa þetta líka á hinn endann: Ef við gerum ekki neitt, hvað eru þá mörg börn, sem halda áfram að hafa auðvelt aðgengi að þessu, sem munu að lokum ánetjast þessu og fá skaða í lungun? Við vitum það ekki heldur. Við vitum ekki á hvorn veginn sem er. En það sem við vitum er bara alveg nóg.
Varðandi sígaretturnar, já, það getur vel verið. En til hvers að ganga skemur? Af hverju göngum við ekki alla leið? Ég veit að það kemur niður á valfrelsi fullorðinna og það er virkilega sárt fyrir suma, það hefur alveg komið í ljós hér, en mér finnst það hálfkák að ganga skemur. Jú, það má hugsanlega að hafa þetta allt saman bak við búðarborðið og sýna skilríki og allt eins og er með sígaretturnar en svo spyr ég mig líka hvort það sé alltaf þannig að það sé spurt um skilríki þegar ungmenni kaupa sér sígarettur. Ég hef ekki gert rannsókn á því og þekki það ekki. Ég er ekki viss.