152. löggjafarþing — 54. fundur,  22. mars 2022.

rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur.

450. mál
[21:13]
Horfa

Dagbjartur Gunnar Lúðvíksson (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Við erum ekki að ræða hér allt eða ekkert. Við erum ekki að ræða það hvort algjört bann muni taka gildi eða að við heimilum sölu á þessari skaðlegu vöru til barna eins og við heimilum sölu á öðrum skaðlegum vörum eins og t.d. sætindum til barna. Það er hlutverk okkar hér að fara dálítið ofan í kjölinn á þessu og við erum að ræða hver líkleg áhrif verða af ólíkum útfærslum og hvort það sé hægt að ná sömu góðu markmiðum með öðrum vægari leiðum, sem ég trúi heils hugar að sé mögulegt og þar af leiðandi ákjósanlegt. Þegar við ræðum þessa skaðlegu vöru þá getum við alltaf sett upp mismunandi sviðsmyndir og áætlað hvað gerist. Hvað gerist ef við veljum kost A, sem er bara algjört bann á öllu? Við getum áætlað að það myndi auka svört viðskipti með umrædda vöru, sérstaklega þegar við erum að tala um ávanabindandi vöru. Það er það sem ég óttast, að með algeru banni þá vaxi þeim ásmegin sem hafa tekjur sínar af viðskiptum með ólöglegar vörur og að aðgengi barna verði enn þá töluvert að þeim vörum eins og er um margar aðrar ávanabindandi skaðlegar vörur sem eru bannaðar. Það eru svona stóru efasemdirnar hjá þeim sem tala fyrir frelsishugsjóninni, (Forseti hringir.) þ.e. að bönn eru ekki gífurlega líkleg til að skila þeim ávinningi sem fólk vonast eftir.