152. löggjafarþing — 54. fundur,  22. mars 2022.

rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur.

450. mál
[21:15]
Horfa

Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég tek undir margt af því sem hv. þingmaður var að segja rétt í þessu. Það er alveg rétt að bann er ekkert endilega líklegt til þess að skila tilætluðum árangri. En hér er of mikið í húfi, finnst mér. Ég vil ekki nota svona mál í einhverju kæruleysi — mig langar mjög mikið að nota orðið gambla, með leyfi forseta, biðst afsökunar á því að sletta en stundum vantar mann orðið. Mér finnst of mikið í húfi hérna og mér finnst ekki hægt að leggja að jöfnu sætindi og nikótínpúða. Við getum fundið fullt af hlutum sem eru ekki hollir og annað slíkt. En mér finnst svolítið hafa verið talað hér í þingsal í kvöld eins og hér sé um að ræða einhverja nauðsynlega næringu sem sumir hér, sem finnst gott að nota þessar vörur, bara fyllast ótta og skelfingu yfir að þeir geti ekki gengið að þessari vöru alltaf eins og áður. Hér er bara allt annað og meira í húfi í ljósi þess hversu auðvelt er fyrir börn að hafa aðgengi að þessari vöru, hún er nánast úti um allt. Og enn eigum við síðan eftir að glíma við vefverslanir. Þær eru náttúrlega eins og þær eru og mjög oft erfitt að koma böndum á þær og það þarf að fara sérstaklega í það, jafnvel þegar búið verður að banna þetta. Þannig að það er ekki eins og björninn sé unninn og hvergi sjáist nikótínpúðar meir í nálægð við börn og unglinga. En þetta er enn þá samt sem áður mjög flókið mál og langur tími kannski þar til okkur tekst að draga verulega úr aðgengi barna og unglinga að þessari vöru. Við verðum bara að vera tilbúin í það þegar við sjáum í rauninni hvað þetta getur skipt miklu máli. Og aftur: Við getum ekki verið að álykta of mikið og halda að þetta og hitt gerist, það er stundum bara ótrúlegt hvernig hlutirnir þróast, jafnvel eftir að búið er að banna eitthvað.