rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur.
Frú forseti. Ég er hjartanlega sammála hv. þingmanni að aðgengi barna að þessum vörum og mörgum öðrum er allt of auðvelt. En ég held að það sé mikill misskilningur að þeir þingmenn sem hér hafa komið upp og rætt þessi mál hafi ekki stutt að það sé gert sem í þessu frumvarpi stendur, að tryggja að aðgengi barna að nikótínvörum sé takmarkað mjög mikið. Það sem hins vegar hefur verið bent á er að það er eitt að takmarka aðgengið, það er annað að takmarka hvaða úrval af vörum er fyrir hendi og, já, þar erum við að tala t.d. um bragðið. Þar þurfum við kannski að horfa á þetta frá öðru sjónarhorni, því sjónarhorni að sumt fólk er að nota nikótínpúðana í stað þess að reykja. Ef þeir sem nota nikótínpúðana hætta að nota þá vegna þess að bragðtegundin sem þeir völdu er ekki lengur fáanleg og byrja að reykja, þá vekur það upp spurningar um hvort það muni ekki hafa jafnvel verri áhrif á börnin í kringum þá einstaklinga. Við þurfum að horfa á þetta heildstætt. Það er verið að takmarka aðgang. Það er verið að setja háar sektir fyrir það að selja börnum þessa vöru. Bragðið er kannski frekar lýðheilsumál einmitt til að stöðva reykingar.