152. löggjafarþing — 54. fundur,  22. mars 2022.

rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur.

450. mál
[21:20]
Horfa

Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka fyrir þetta andsvar. Aftur er samt hér verið að álykta svolítið á þá leið núna að verði þetta bannað þá muni þeir sem eru að nota vöruna til að hætta að reykja mögulega að hefja aftur reykingar eða falla og það muni síðan hafa skaðleg áhrif á börnin og þá er svolítið gengið út frá því að viðkomandi sé að reykja nálægt börnum. Þetta er orðið örlítið langsótt. Jú, þetta getur alveg skeð. En það sem ég held að hafi nú reyndar stórlagast í þessu samfélagi, alla vega eftir því sem ég hef tekið eftir, er að fullorðið fólk er ekki að reykja eins mikið nálægt börnum, ég held að það hafi snarminnkað. Það er eiginlega bara mjög fordæmt. Maður tekur eftir því ef einhver tekur upp sígarettu með barn sér við hlið. Við erum sem betur fer komin þangað að við gerum okkur grein fyrir óbeinum reykingum o.s.frv. En jú, þetta er eitt af því sem gæti mögulega gerst. Ég hef ekki beinlínis mjög mikla samúð varðandi það hvort það sé ekki til nammibragð eða ávaxtabragð fyrir þann sem er að reyna að venja sig af reykingum og þar með muni hann mögulega bara falla algerlega aftur í reykingarnar og allt enda með ósköpum. Auðvitað getur maður dregið upp alls konar svona myndir og það er hræðilegt og reykingar eru náttúrlega verulega skaðlegar og annað en aftur kem ég að því að horfa á ungmennin sem labba að þessu hér og þar og alls staðar. Og jafnvel eftir að búið verður að banna þetta, og eins og ég var að segja, mér finnst þetta ekki skemmtilegt, þá muni krakkarnir samt sem áður sennilega bara í gegnum netið lengi vel hafa auðvelt aðgengi að þessu. Það verður veruleg áskorun fyrir okkur öll að ná utan um vefverslunina. Ég hef eiginlega mestar áhyggjur af því, jafnvel þó að það væri búið að banna þetta, að það verði samt sem áður mjög auðvelt að fara inn á netið og ná sér í þetta og börnin haldi áfram að skaðast af nikótínpúðum.