152. löggjafarþing — 54. fundur,  22. mars 2022.

rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur.

450. mál
[21:22]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P) (andsvar):

Frú forseti. Ég held að það sé alveg jafn langsótt að segja að það að hafa þessar ákveðnu bragðtegundir sé skaðlegt og muni auka það að börn sæki í vöruna. Það eru nefnilega engin rök í frumvarpinu fyrir því, annað en að sagt er að rök megi leiða að því. Mig langar að ræða almennt um tóbak og slíkt, ekki bara nikótín. Nú hafa lönd eins og Nýja-Sjáland, og það er til umræðu í Danmörku, hætt að vera með aldurstakmarkið 18 ára við kaup á nikótínvörum og við kaup á tóbaki og hreinlega að segja: Allir fæddir frá og með árinu 2010 mega ekki kaupa nikótínvörur. Finnst hv. þingmanni (Forseti hringir.) þetta betri aðferð heldur en að takmarka svona?