152. löggjafarþing — 54. fundur,  22. mars 2022.

rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur.

450. mál
[21:32]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P) (um fundarstjórn):

Frú forseti. Ég vona að þú takir því ekki illa en mér finnst vanta, ekki bara fleira fólk í salinn heldur annað fólk. Við erum að lenda í því, eins og gerist allt of oft, að stjórnarliðar skila auðu. Síðustu daga, síðustu viku höfum við verið að ræða mjög pólitísk mál frá hæstv. heilbrigðisráðherra; heilbrigðisþjónustu við aldraða, enginn stjórnarliði ræddi það mál. Skimunarskrá landlæknis, enginn stjórnarliði ræddi það mál. Beitingu nauðungar, sem ráðherrann dró góðu heilli til baka. Enginn stjórnarliði kvaddi sér hljóðs í því máli.

Nú háttar svo til að við erum að ræða mál sem snertir einhverja taug hjá ungliðum í einum stjórnarflokknum. Ungir Sjálfstæðismenn hvöttu þingmenn sína til dáða í þessu máli en efndirnar eru lítið annað en sýndarmennska. (Forseti hringir.) Við höfum fengið ræðu frá einum þingmanni og annar þingmaður tók stutt andsvör. Það eru nú allar heimturnar þegar grasrótin í svokölluðum (Forseti hringir.) frelsisflokki fer fram á að þingmennirnir standi með þeim gildum. (Forseti hringir.) Þeir eru kannski bara uppteknir á einhverri árshátíð úti í bæ.

(Forseti (JSkúl): Ég minni á að ræðutími í fundarstjórn er ein mínúta.)