152. löggjafarþing — 54. fundur,  22. mars 2022.

rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur.

450. mál
[21:42]
Horfa

Dagbjartur Gunnar Lúðvíksson (V) (um fundarstjórn):

Virðulegi forseti. Ég hjó eftir því í ræðu hv. þm. Hildar Sverrisdóttur að hún talaði um fyrirvara Sjálfstæðisflokksins. Þá langar mig bara til að fá það á hreint hvort allur Sjálfstæðisflokkurinn standi að þeim fyrirvara. Í ræðum fyrr í kvöld virtist eins og það væri bara hluti Sjálfstæðisflokksins sem legði þann fyrirvara fram. Ef svo er, ef allur flokkurinn er með þennan fyrirvara, spyr ég hvort þetta mál hefði átt að komast í gegnum ríkisstjórn og vera lagt fram í þessari mynd. Ég spyr þá líka hvers vegna fleiri hv. þingmenn Sjálfstæðisflokksins hafa ekki stigið hér upp í stól til að lýsa þessum fyrirvörum sínum og reyna að ná fram þeim áhrifum sem við vonumst til að ná við meðferð málsins á þingi.