152. löggjafarþing — 54. fundur,  22. mars 2022.

rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur.

450. mál
[21:43]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P) (um fundarstjórn):

Frú forseti. Ég tek undir með hv. þm. Dagbjarti Gunnari Lúðvíkssyni. Ég hjó einmitt eftir því að í fundarstjórn forseta kom fram hjá þingmanni Sjálfstæðisflokksins í fyrsta sinn að þingflokkurinn í heild sinni hefði gert fyrirvara við þetta frumvarp. Ég heyrði það ekki í umræðum hér fyrr í kvöld, (Gripið fram í: … hlusta.) eftir að hafa þó setið hér og hlustað á t.d. Berglindi Ósk Guðmundsdóttur lýsa sínum fyrirvara. Það skiptir máli að segja nákvæmlega við hvað þingflokkur stjórnarflokks gerir fyrirvara þegar hann gerir það í heild sinni vegna þess að það er ein af stóru sleggjunum í skúffunni. Það hefur ekki komið skýrt fram. Það hefur ekki komið skýrt fram hvort flokkurinn geri kröfu um að ákveðnum hlutum verði fargað í þinglegri meðferð til að hleypa málinu í gegn. Við vitum ekkert hver afdrif þessa máls verða af hálfu stærsta stjórnarflokksins. En það er svo sem alvanalegt af því að þeir eru oft farnir að nota þinglega meðferð til að fela ágreining sem ekki er hægt að leysa á milli flokkanna, henda bara málum hálfköruðum til þingsins og vona að við græjum eitthvað.