rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur.
Forseti. Það er ágætt að umræðan hér í hliðarsal komi fram, það var kallað ómerkilegt að draga þetta upp, það sem var í ræðu hv. þingmanns. En það kom víst eitthvað fram í andsvörum. Það er erfitt að fletta öllu upp með svona skömmum fyrirvara eftir að það kemur. En það er þó hægt af því að við erum með svo rosalega flotta síðu sem heitir bútar.althingi.is/raedur/asr. Ég mæli með að þingmenn fletti upp á þessari síðu og nýti sér hana til að skoða þann texta sem búinn er til nokkurn veginn jafnóðum. Um leið og næsti ræðumaður mætir í pontu Alþingis er texti síðasta ræðumanns kominn, ekki alveg fullkominn en svona að mestu leyti. Þegar verið er að grafa upp það sem hinn og þessi sagði þá er mjög fljótlegt að fara inn á þennan vef og sjá það nákvæmlega.
Ég hef annars nokkrar athugasemdir við það frumvarp sem hér er fjallað um og mig langar bara að byrja á að minna fólk á bannárin. Lærði fólk ekkert af bannárunum? Það fyrirkomulag virkaði ekki. Það bjó bókstaflega til skipulagða glæpastarfsemi víða um heim og olli ómældum sorgum og slæmum hlutum á þeim tíma. Bannstefna sem slík er eitthvað sem við eigum að fara gríðarlega varlega í og íhuga á allan hátt hvort ekki sé hægt að gera eitthvað annað í staðinn. Það er ekkert sjálfsagt að bann á vöru sem fólk notar sem neysluvöru, og hefur gert í ansi langan tíma hvað nikótín varðar, virki. Það er alveg möguleiki að það virki þveröfugt, að það hafi verri áhrif í heildina litið þegar allt kemur til alls. Að því gefnu er ekkert óeðlilegt að verið sé að skilgreina nikótín hér sem varhugavert efni hvað aldurstakmörk varðar og þess háttar.
Það næsta sem ég ætlaði að koma að er að athygli mín var vakin á lagabreytingum sem urðu 2011–2012, gríðarlega þykkt lagafrumvarp þar sem farið var í gegnum allt lagasafnið og skipt út orðum eins og „landbúnaðarráðherra“ og þvíumlíkt fyrir „ráðherra“ og setti í titil laganna, eftir forsetaúrskurðum, hvaða ráðherra væri átt við í lagatextanum. Það gerir að verkum að þegar verið er að breyta heitum á ráðherra þá er óþarfi að breyta öllu lagasafninu þar sem vísað er til þess ráðherra. Ég vek athygli á þessu af því að hér erum við einmitt með hitt vandamálið hvað slíkt varðar. Það er verið að minnast á Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, hún hefur ýmiss konar hlutverk hvað þessi lög varðar. Ef nafninu á þeirri stofnun er breytt eða ýmsum öðrum ríkisstofnunum þá þarf einmitt að fara í gegnum allan lagabálkinn og breyta nöfnum á þessum stofnunum hingað og þangað. Það er spurning hvort fara ætti í svipaða lagahreinsun upp á það að gera ef minnst er á ákveðna stofnun og þá tiltekið hvaða stofnun ber ábyrgð á lagabálkunum. Ef einhver lög ná yfir fleiri en eina stofnun er kannski eðlilegt að lögunum sé skipt upp á einhvern hátt til aðgreina það eða útfæra það á annan hátt. Þetta er bara ábending hvað þetta varðar.
Í c-lið 1. töluliðar 3. gr. segir, með leyfi forseta:
„Nikótínvara: Vara sem inniheldur nikótín, hvort sem nikótínið er unnið úr tóbaki eða ekki …“
Það er bara einfaldlega vara sem inniheldur nikótín. Nú er það svo að það eru ýmsar náttúrulegar vörur sem innihalda nikótín, t.d. tómatar og eggaldin. Ég velti þá fyrir mér hvort þetta séu orðnar nikótínvörur sem falli undir þessi lög. Það væri áhugavert að vita. Þetta eru svona skilaboð til nefndarinnar í áframhaldandi vinnu. Magnið er vissulega ekki mikið, einhverjum þúsundum minna en að taka smók o.s.frv. en nikótín er þar þrátt fyrir allt. Te líka, pipar og paprikur. Þetta finnst mér áhugavert að orða. Strangt tiltekið lagatæknilega séð ættu þessar vörur að falla undir nikótínvörur. Það væri kannski eðlilegt að tilgreina eitthvert magn, lágmarksmagn eða eitthvað svoleiðis, hversu mikið magn varan þarf að innihalda til að teljast nikótínvara. Það gefur áhugaverða skírskotun í neysluskammtafrumvarpið, afglæpavæðinguna, þar sem þarf einmitt að skilgreina ákveðið lágmark sem telst til neysluskammts og þetta væri þá ákveðinn neysluskammtur á nikótíni, sem væri dálítið áhugavert.
Í b-lið 9. gr., er orðalagið áhugavert þar sem talað er um bragðefni sem kunni að höfða til barna, svo sem nammi- og ávaxtabragð. Þarna er ekki tæmandi listi heldur er þetta mjög opin reglugerðarheimild fyrir nánari útfærslu þessa ákvæðis. Það gerðist víst í Noregi, held ég hafi verið, eða í umræðum sem ég tók eftir um þetta mál, að eftir svona ávaxta- og bragðefnabann kom einfaldlega fullt af nýjum tegundum með einhvers konar nöfnum eins og síklon eða eitthvað svoleiðis, síklonbragð, eitthvað tilbúið, svona gervisætuefni eða eitthvað þess háttar. Hver á að meta hvort slíkt efni höfði til barna eða ekki? Mér finnst það áhugaverð spurning, af því að talað er um „svo sem nammi- og ávaxtabragð“, þetta er rosalega opin skilgreining. Við vitum náttúrlega að ávaxtabragð er mjög vítt hugtak. Það eru ýmis gervisætuefni eða bragðefni sem eru notuð, það eru ekkert endilega jarðarber sem eru notuð til að búa til jarðaberjabragð. En þýðir það að við séum með einhvers konar bragðsmökkunaraðila ríkisins, eins og með vínsmökkun, sem fer í gegnum öll þau bragðefni sem eru í boði og vegur og metur hvort um ávaxtabragð sé að ræða eða eitthvað annað? Vissulega er hægt að blekkja með öðrum merkimiðum og segja: Þetta jarðarberjabragð, sem er í alvörunni jarðaberjabragð, heitir í raun eitthvað annað, ég er ekki að segja að það sé jarðaberjabragð og þar af leiðandi slepp ég fram hjá þessu. Ætlar einhver bragðeftirlitsaðili að skera úr um það hvort þetta á við eða ekki? Mér finnst þetta mjög spes. Ég skil alveg hvaðan þetta kemur, þessi löngun í að banna bragðefni hingað og þangað. Ég skil alveg hvaðan rökin koma varðandi börnin, þau koma tvímælalaust frá góðum stað, það er enginn að efast um það. En það þýðir ekki að allt sem lagt er til til að verja börnin sé eina lausnin til að verja börnin, alls ekki. Stundum þurfum við einmitt að velja flóknari leiðir en þær sem líta út fyrir að vera einfaldar: Hey, bönnum þetta bara, þar með er málið leyst. Nei og nei. Bannárin ættu að kenna okkur eitthvað um það. Mér þætti áhugavert að spyrja hæstv. ráðherra hvaða bragð hann notaði í sínu baggi fyrir ekki svo löngu. Mig rámar í að hafa séð einhverja góða dollu sem — já, leyfum honum að tjá sig um það, kannski í lok umræðunnar.
Förum aðeins yfir í 12. gr. Þar er verið að bæta við nýrri málsgrein, með leyfi forseta:
„Notkun nikótínvara er óheimil í leikskólum, grunnskólum, framhaldsskólum og öðrum menntastofnunum sem og í öðrum húsakynnum sem ætluð eru til dagvistunar og félags-, íþrótta- og tómstundastarfs barna og ungmenna.“
Ég skil alveg hvaðan þetta er að koma líka. En má þá ekki vera með nikótínplástur? Veit það einhver? Ég myndi giska á að svarið væri nei. Það má ekki setja hann undir bolinn, vera með nikótínplástur og sinna þessum daglegu þörfum þeirra sem eru með nikótínfíkn. Er það virkilega markmið þessarar greinar? Ég held ekki. Ég skil alveg að verið sé að banna að reykja og ýmislegt sem telst til óbeinna áhrifa og jafnvel eitthvað sem er sýnilegt, t.d. að troða bagga í vör, ég skil það alveg. En áhrifin eru flóknari en það. Erum við ekki frekar að tala um hvernig fíkn hefur áhrif á fólk, val þess til þess, skaðsemi af því, frekar en einmitt að banna allt, fela allt, stinga öllu undir borðið. Uss, það má ekki tala um þetta. Nei, þetta er ó ó. Er það hjálplegt? Hefur það einhvern tímann virkað? Ég held ekki, ekki svo að ég viti til alla vega.
Leyfisskyldan í 16. gr. fannst mér rosalega áhugaverð. Þar er verið að gefa umsækjendum leyfi — þetta er pínuútúrdúr, afsakið — en þar er sagt: „Leyfið er bundið við leyfishafa og er á engan hátt framseljanlegt.“
Kvóti? Mér finnst svo merkilegt þegar verið er að nota mismunandi aðferðir í sambærilegum málum að nokkru leyti. Þarna er verið að gefa markaðsleyfi til að stunda ákveðna atvinnu. Það er ekkert öðruvísi en sala á kvóta eða gjöf á kvóta í kvótakerfinu, það er nákvæmlega ekkert öðruvísi. Þar má vera með framsal fram og til baka og útgerðarfyrirtækin sjá bara um að verðleggja leyfi o.s.frv. Hér er það harðbannað. Það er áhugavert. Þetta er bara smáútúrdúr, ég biðst afsökunar á því, þetta er ekkert rosalega illa meint. Mér finnst það bara ákveðin tenging miðað við hvernig framsalsleikir og leyfisveitingar eru í þessu umhverfi okkar.
Það er vissulega ýmislegt áhugavert og réttmætt í þessu frumvarpi sem við þurfum tvímælalaust að skoða alvarlega. En svo eru önnur atriði sem við þurfum í fyrstu atrennu að skoða á annan hátt. Það varðar þennan menningarlega hátt í því hvernig við nálgumst samfélagsleg vandamál. Í þessu frumvarpi er nálgunin klárlega sú að okkur dettur ekkert annað gáfulegra í hug en bara að segja: Bönnum þetta. Ég held að það sé röng nálgun. Það er léleg lausn á nokkurn veginn öllum vandamálum að hugsa fyrst: Bönnum þetta. Aðrar lausnir eru tvímælalaust flóknari, alla jafna, krefjast meiri virkni, meiri aðgerða, jafnvel meiri kostnaðar. En áhrifin af forvarnastarfi hafa tvímælalaust sannað sig í gegnum árin og fræðsla og leiðbeiningar og jákvætt hugarfar um flókin málefni eins og fíkn er eitthvað sem við þurfum að fara að tileinka okkur til að stuðla að heilbrigðara samfélagi. Allt þangað til núna, með stríðið um fíkniefnalaust Ísland árið 2000 o.s.frv. — virkaði það? Nei. Hefur það einhvern tímann virkað? Nei. Samt er verið að reyna aftur og aftur.