rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur.
Virðulegur forseti. Mig langar til að þakka hv. þm. Birni Leví Gunnarssyni fyrir afbragðsgóða yfirferð. Hann fór mjög á dýptina í þessu máli, sem er það sem ég er búinn að vera að kalla eftir og við höfum verið að kalla eftir hér í kvöld, að við getum rætt þetta mál dálítið vel og kafað í það, vegna þess að þessi sjónarmið sem við erum að ræða hér þurfa að koma fram til að unnt verði að bæta málið í nefndarvinnu. Eins og staðan er núna þá er tilfinning mín sú að málinu væri betur borgið aftur í ráðuneytinu til að vinna úr þessum stærstu ágöllum. Ég sé hæstv. ráðherra hrista hausinn; það kemur ekki til greina. Það kemur heldur ekki á óvart, en það er alla vega mín afstaða eins og málið blasir við mér. Það eru búnar að eiga sér stað hérna góðar umræður og vegna þess að hv. þingmaður er að koma inn í umræðuna núna væri ég til í að varpa hluta af þeirri umræðu sem átti sér stað áðan til hans og spyrja bara svona almennt: Hvernig telur hann að verði best hægt að móta þetta frumvarp, þessi lög, þannig að lýðheilsusjónarmiðin gagnvart börnum verði ofan á en ekki gengið svona gífurlega langt í takmörkunum á neyslu fullveðja lögráða einstaklinga eins og lagt er til hér?