152. löggjafarþing — 54. fundur,  22. mars 2022.

rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur.

450. mál
[22:02]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (andsvar):

Forseti. Ég þakka einstaklega góða spurningu. Hún kemur aðeins inn á það sem ég var að ljúka við í ræðunni minni áðan og það er í rauninni hvernig menning okkar er. Hver eru sjálfkrafa viðbrögð okkar við vandamálum? Eins og ég var að lýsa áðan virðast oft sjálfkrafa viðbrögð okkar við einhverju sem ógnar börnum vera að banna. Bönnum þetta bara og þá er málið leyst. Nú þurfum við ekki að hugsa um það, nú getum við farið að hugsa um húsnæðismarkaðinn. Nema stjórnin gerir það ekki, því miður.

Það þarf að mínu mati að leggjast dálítið vel yfir það — ekki bara í þessu máli heldur í áfengismálum, í vímuefnamálum almennt, spilafíkn t.d., tökum bara fíkniflokkinn eins og hann leggur sig, við þurfum að ná að breyta hugarfarinu. Þegar við erum búin að mennta okkur sjálf í því að til eru aðrir möguleikar sem hafa sýnt sig að virka þá getum við kannski farið að taka skrefin í að búa til lög sem nota það fyrirkomulag.

Ég verð oft var við það í mörgum öðrum málaflokkum, menntun t.d., að verið er að nota ákveðnar kennsluaðferðir, nota þær bara að eilífu amen, en menntunarfræðin hafa komið upp með ýmiss konar aðrar betri aðferðir, ja, eða lélegri og samt er verið að nota þær. Lestraraðferðin víðfræga sem kom frá Akureyri, það voru engin gögn á bak við hana og samt var bara farið að nota hana. Ég tel að við ættum að læra meira af gagnrýndum, gagnreyndum aðferðum. (Forseti hringir.) Bannaðferðin hefur ekki verið að skila tilætluðum árangri og við þurfum að taka tillit til þess.