rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur.
Virðulegi forseti. Ég held að hv. þm. Björn Leví Gunnarsson hafi hitt naglann á höfuðið þegar hann talaði um hugarfarsbreytingu og að vinna með það svið í menntunarfræðum sem snýr að forvörnum og hefur stundum verið kallað forvarnafræði, því að það hafa margar lærðar greinar verið skrifaðar um það hvað virkar og hvað virkar ekki í þessum efnum. Skotar hafa verið mjög leiðandi í að byggja stefnumótunina sína á vísindum þegar kemur að forvörnum og við megum læra mikið af þeirra nálgun. Eitt af því sem þar er talað um er svokölluð fjölskyldusamvera sem hefur verið gert nokkuð af hér. Annað sem talað hefur verið um er snemmtæk íhlutun hjá einstaklingum sem eru í áhættuhópi. Það er hægt að grípa einstaklinga mjög snemma og veita þeim þá alúð og umhyggju og þann stuðning sem þörf er á. Það sem hins vegar virkar ekki er að taka gamlan fíkil og skófla honum inn í skólasal og láta hann segja börnunum að varast fíkniefni. Þessi sömu fræði benda ítrekað á að það virkar ekki og getur haft í verstu tilvikunum þveröfug áhrif. Þess vegna vildi ég velta þeirri spurningu upp: Hvað fleira sem við erum að gera hér, t.d. í þessu frumvarpi, er líklegt, sennilegt til að hafa þveröfug áhrif miðað við það sem lagt er upp með, eins og við höfum rætt? Munu bönn á ákveðnum bragðtegundum á nikótínpúðum gera það að verkum að fólk með nikótínfíkn sé líklegt til að leiðast aftur út í reykingar og reykja fyrir framan börnin sín? Þetta eru hlutir sem við verðum að taka til umræðu hér og leiða til lykta ef við ætlum að standa að vandaðri löggjöf á þessu sviði.