rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur.
Virðulegi forseti. Það er ekki bara á þessu sviði sem ég tel að þurfi hugarfarsbreytingu. Tökum sem dæmi farsældarlögin sem samþykkt voru á síðasta kjörtímabili. Fjármögnun er vafasöm, ef ég má orða það þannig. Það koma peningar en nákvæmlega hvernig átti að skipuleggja og nota þá er mjög ómarkvisst, eitthvað sem þingið hefur í rauninni ekki hugmynd um hvort skili þeim árangri sem ætlað var með lögunum, enda engin viðmið sett hvað það varðar. Ef við hættum að skoða aðeins aðferðirnar sem við höfum verið að nota — af því að þær eru gjörsamlega í myrkrinu. Það er stofnanamenningin sem er þar á bak við, að sitja á bak við skrifborð og taka á móti umsóknum og stimpla þær o.s.frv. Sérfræðingar segja að það sé þumalputtaregla að kannski 30% í hverjum árgangi barna lendi í einhvers konar erfiðleikum í barnæsku sinni. Hvert barn þarf kannski að meðaltali átta klukkutíma með einhverjum sem getur hjálpað því í gegnum erfiðleikana á mismunandi stigum, í fyrsta, öðru eða þriðja meðferðarstigi. Bara einföld margföldun á því: Hérna er meðferðaraðili sem tekur í tímakaup 20.000 kall, átta klukkutímar fyrir þetta mörg börn, margfaldað með pí — það er yfirleitt þumalputtareglan af því ekki er alltaf hægt að vera 100% af öllu allan tímann — þá erum við að tala um 1,5 milljarð, eitthvað þvíumlíkt, 100 manns sem eru teymi til að taka á móti þessum börnum. 100 manns fyrir allt landið (Forseti hringir.) myndu taka á móti því vandamáli, sem farsældalögunum er ætlað að glíma við, og myndu afgreiða það. (Forseti hringir.) Það er kostnaðurinn á bak við þetta, kostnaður sem er á fullt af stöðum í kerfinu. Það myndi því líklega (Forseti hringir.) ekki vera neinn aukakostnaður, það er bara að nota aðferðirnar skilvirkt.