152. löggjafarþing — 54. fundur,  22. mars 2022.

rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur.

450. mál
[22:09]
Horfa

Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir (P):

Frú forseti. Manneskjan, eins og öll dýr á þessari jörðu, sækir gjarnan í einhvers konar vímu. Við munum aldrei koma í veg fyrir það. Áhættuhegðun ungs fólks er eðlilegur og jafnvel nauðsynlegur hluti af þroskaferlinu. Áhættuhegðun þessi hefur mismunandi birtingarmyndir, birtingarmyndir sem breytast með tíðarandanum og nýjum kynslóðum. Sumir klifra á húsþökum eða krönum á meðan aðrir nota ýmis missterk, mislögleg og misviðurkennd vímuefni.

Því hefur verið haldið fram í þessari umræðu og það hefur verið bent á að nikótínpúðar og veip eru skaðaminnkandi úrræði. Þá er rétt að spyrja sig: Er rétt að hefta notkun þeirra um of í ljósi þess að fólk notar þetta til að hætta mun skaðlegri neyslu sem eru reykingar, m.a.? Okkar hlutverk hér inni sem þingmenn og sem fullorðið fólk, sem höfum vit fyrir börnum og öðrum landsmönnum, er að draga úr skaðanum sem getur orðið af neyslu fólks en ekki endilega að reyna að stoppa alla neyslu með boðum og bönnum, enda hefur margsýnt sig í gegnum mannkynssöguna, og við eigum að vera búin að læra það, að boð og bönn eru ekki besta leiðin til að breyta hegðun fólks, sérstaklega ekki þegar um eitthvað þessu líkt er að ræða. Við getum haft áhrif á neysluhegðun með fræðslu og forvörnum fyrst og fremst, með því að skapa umhverfi og bjóða upp á stuðning sem vegur á móti áhættuhegðun, kemur í veg fyrir skaðlegar afleiðingar neyslunnar og kemur í veg fyrir að neyslan verði til langtíma.

Allt sem er skaðlegt er heldur ekki bannað, enda er það ekki alltaf lausnin. Við erum með heimsmet í gosdrykkju sem dæmi, mikið sykurát og aðrar skaðlegar venjur sem sannarlega hafa áhrif á lýðheilsu og á einstaklinga í þessu landi. Það sem gerist, og hefur sýnt sig þegar reynt er að banna eitthvað sem fólki finnst ekki að eigi að vera bannað eða það áttar sig ekki á því hvers vegna það er bannað eða það telur of langt gengið að banna það, er að fólk fer að brjóta reglurnar. Það gerist meira eftir því sem fleirum finnst reglurnar fáránlegar og eftir því sem fólki finnst þær fáránlegri skapast það sem við köllum svartan markað. Þetta er eitthvað sem við þekkjum vel í tengslum við önnur vímuefni sem eru að einhverju leyti lögleg eða að einhverju leyti ólögleg hér á landi.

Það hefur verið mikil fjölmiðlaumfjöllun um það núna á síðustu dögum hversu vel hefur gengið að minnka áfengisneyslu hjá ungu fólki. Er það vegna þess að áfengi var allt í einu bannað fyrir þennan hóp? Nei, það hefur verið bannað um allnokkra hríð fyrir allt fólk undir tvítugu að kaupa sér áfengi. Hvað breyttist? Hvað gerðist? Hvað varð til þess að draga úr áfengisneyslu ungs fólks? Það er sannarlega að einhverju leyti það að minna skaðlegir spennandi hlutir eru í boði. Við höfum kannski áttað okkur á því á undanförnum árum að það hafa ofan af fyrir ungviðinu okkar og veita því þá spennu og að fá útrás fyrir þá forvitni sem fylgir því að vera vaxandi manneskja dregur úr líkum á að það leiti í skaðlegri leiðir.

Markmiðið með þessu frumvarpi er m.a. að draga úr skaðlegri hegðun ungmenna og jafnvel barna. Hvernig gerum við það? Skaðlega neyslu ungs fólks má gjarnan rekja til skorts á valmöguleikum en má líka rekja til skorts á heilbrigðri tengslamyndun og öðrum þáttum sem allt aðrar aðferðir þarf að nota til að vinna með eða gegn heldur en boð og bönn. Raunar er það svo að boð og bönn eru ekki aðferðir nútímans til að stjórna, hvorki fullorðnu fólki né börnum. Má þar nefna sem dæmi að sem uppeldisaðferð hefur það að banna eitthvað með afleiðingum og öðru ekki þótt árangursríkara en svo að þetta eru uppeldisaðferðir sem er hreinlega ekki mælt lengur með.

Það er sannarlega þannig að fólk og samfélög eru mislangt komin í þróun hugmynda um svona hlutil. Langar mig að nefna persónulega reynslu af samfélagi þar sem ég tel þróun uppeldiskenninga vera komna styttra á veg en t.d. á Íslandi og á Norðurlöndum og það er reynslan af dvöl minni í Frakklandi. Það var eftir eitt og hálft ár í Frakklandi sem ég tók eftir því að á göngum grunnskólans stóð úti um allt: Bannað. Bannað að fara inn á skónum, bannað að setja skólatöskuna sína hér, bannað að hlaupa á göngunum, bannað að vera með tyggjó, „bannað“ úti um allt. Það vakti undrun mína að sjá þetta og þá fór ég að hugsa með mér: Ég er ekkert sérstaklega vön því lengur í dag að sjá orðið „bannað“. Í skólum á Íslandi stendur: Vinsamlegast farið úr skónum. Hér höfum við hreina ganga, göngum varlega um gólf og annað slíkt, þar sem það hefur einfaldlega reynst vera árangursríkara að styðja fólk til góðra verka og börn ekki síst, og hvað eigum við að segja, stunda ákveðnar forvarnir með vitibornu samtali og annað.

Þessar aðferðir, að banna, eru ekki nútímalegar til að stýra hegðun fólks og það vitum við. Þetta er ekkert nýtt. En það sem vekur athygli mína við þetta, að þetta skuli lagt fram, er að þetta er ekki einsdæmi í stefnu ríkisstjórnarinnar og þess sem borið er á borð fyrir okkur hér á þinginu í þessa áttina. Reyndar fór það svo að hæstv. heilbrigðisráðherra ákvað að draga til baka frumvarp sem snerist um að þvinga fólk með geðræn vandamál til að gera eitthvað eða gera ekki eitthvað, í stað þess að beita þeim úrræðum sem eru viðurkennd í dag, sem er að koma fram við fólk eins og fullveðja, sjálfstæða, vitiborna einstaklinga, þó að þeir eigi við áskoranir að glíma. Það var eitt dæmi. Annað dæmi er sú ákvörðun hæstv. ráðherra, sem er mjög miður og hefur mikið verið rætt um hér í þingsal og þeirri umræðu er sjálfsagt ekki lokið, að draga til baka eða að ákveða að leggja ekki fram frumvarp sem sannarlega snýst um hugarfarsbreytingu í þessum efnum, snýst um raunverulega skaðaminnkun, raunverulega baráttu gegn skaðlegri hegðun og skaðlegri neyslu. Það er frumvarp um afglæpavæðingu neysluskammta sem því miður hefur ekki verið borið hér á borð enn þá.

Þannig að sú áhersla ríkisstjórnarinnar sem birtist í þessu frumvarpi er orðin nokkuð ljós. Þetta er gamaldags hugarfar, það er gamaldags hugmyndafræði sem liggur þarna að baki. Ég held að við gerum okkur öll grein fyrir því að þetta virkar ekkert. Þetta eru einfaldar, frumstæðar aðferðir alveg eins og fyrir mörgum árum og enn í sumum samfélögum tíðkast að beita börn líkamlegum refsingum til að stýra hegðun þeirra. Það er eitthvað sem við gerum ekki lengur, bæði vegna þess að það virkar ekki og sannarlega vegna þess að það er skaðlegt, það er beinlínis skaðlegt. Á það hefur reyndar verið bent hér í máli nokkurra hv. þingmanna að tilraunir til að nota þvingun, og boð og bönn jafnvel, og þessar aðferðir, þessi viðhorf til að stýra hegðun fólks, geta haft þveröfug áhrif, beinlínis skaðleg áhrif.

Þannig að hvað er til ráða? Í fyrsta lagi held ég að það séu margar góðar hugmyndir í þessu frumvarpi eins og margoft hefur komið fram hér sem snúast um að takmarka aðgengi að einhverju leyti og annað slíkt. En það þarf líka að fara í mikið forvarnastarf og forvarnastarfið er ekki bara plaggöt á veggjum til að útskýra fyrir fólki hversu skaðlegir hlutirnir eru. Forvarnastarf er fólgið í okkar samskiptum, því hvernig við tölum saman, hvernig við tölum við börnin okkar og öllu því sem við höfum lært á síðustu 100–200 árum til að hafa áhrif á hegðun fólks. Ég vildi bara koma upp og lýsa vonbrigðum mínum með hugmyndafræðina, sem ég fæ ekki betur séð en að sé að baki mörgum þingmálum ríkisstjórnarinnar og að baki því að mörg þingmál hafa ekki verið lögð fram, og hvetja nefndina sem mun fara yfir þetta frumvarp, og þingmenn við þinglega meðferð málsins, til að skoða þetta vel, til að velta fyrir sér þeim markmiðum sem stefnt er að og hvort þær leiðir sem lagðar eru til séu raunverulega til þess fallnar að ná þeim markmiðum eða hvort við séum mögulega að fara í öfuga átt, hvort við séum mögulega að valda meiri skaða.