rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur.
Frú forseti. Ég vona að við förum bráðum að ljúka umræðunni um þetta ákveðna mál. Ég held að það hafi komið nokkuð vel fram í umræðum í kvöld að það er margt í þessu máli sem er af hinu góða, forvarnir og að takmarka aðgengi ungs fólks að þessum vörum og einnig það hversu mikilvægt það er að þetta sé valkostur fyrir fólk sem vill hætta að reykja. Sjálfur fékk ég þær forvarnir í æsku að ég hef aldrei reykt eða notað þessa nikótínpúða eða neitt annað slíkt. En það þýðir ekki að ég muni stöðva aðra í því. Það er líka annað sem ég hef tekið eftir en það er að það fólk sem ég þekki í mínu nærumhverfi sem hefur verið að reykja hefur hætt því og notar núna þessa púða. Ég tel að það sé af hinu góða, Eins og með allt annað sem við gerum þegar við erum að setja takmörk á það hvað megi kaupa, hvað megi selja, hvað megi neyta o.s.frv., þá þurfum við að finna hinn gullna meðalveg í því. Ég held að það sé alveg ljóst fyrir alla þá sem hlustuðu í dag að ávaxtabragðið og jafnvel nammibragðið hafi verið hitinn í þeirri umræðu. Frumvarpið hefði sennilega farið í gegn á tveim mínútum ef sú setning og setningin um aðrar menntastofnanir hefðu ekki verið þar inni. En við lærum af því og pössum að senda þau skilaboð uppi heilbrigðisráðuneytið að orða það betur, að tala ekki um aðrar menntastofnanir og ráðast ekki á bragðtegundirnar sem þingmenn nýta sér, þá fara frumvörpin hraðar í gegn. Það er von mín að við förum að ljúka þessari umræðu og koma þessu inn í nefnd, sem ég treysti og trúi að taki tillit til þeirra endurteknu atriða sem hér hafa komið fram um bragð og háskóla.