dagur Norðurlandanna.
Forseti vill vekja athygli hv. alþingismanna á því að í dag, 23. mars, er dagur Norðurlandanna. Fyrir 70 árum, í marsmánuði 1952, var lagður grunnur að norrænu þingmannasamstarfi og þann 23. mars árið 1962 var Helsingforssamningurinn undirritaður, sem tryggir öllum ríkisborgurum Norðurlanda m.a. jafnt aðgengi til náms og vinnu hvar sem er á Norðurlöndunum og er hornsteinn samstarfs ríkjanna. Norræn félög alls staðar á Norðurlöndunum halda daginn hátíðlegan, fagna norrænu samstarfi og benda á mikilvægi þess. Af þessu tilefni er nú fánum Norðurlandanna flaggað hér við inngang Alþingishússins. Þess má jafnframt geta að forseti átti í morgun fund með forsetum norrænu þjóðþinganna og fjarfundi og einnig átti forseti fund með norrænum sendiherrum í dag þar sem mikilvægi norræns samstarfs var rætt.