152. löggjafarþing — 55. fundur,  23. mars 2022.

um fundarstjórn.

[15:05]
Horfa

Jóhann Páll Jóhannsson (Sf):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka fyrir öfluga fundarstjórn. Eins og hv. þm. Guðbrandur Einarsson fór hér yfir þá fór fram útboð í gær á 22,5% í Íslandsbanka og þrátt fyrir gríðarlega umframeftirspurn var veittur 2,25 milljarða afsláttur. Við erum enn þá í þoku um það hverjir kaupendurnir eru og afslátturinn var auðvitað mörgum milljörðum meiri ef við myndum miða við gengið eins og það er núna eftir daginn. Fyrsti viðskiptadagur er ekki liðinn.

Ég vil taka þetta upp undir þessum lið vegna þess að þetta þarfnast allt saman umræðu í þinginu. Mér finnst það umhugsunarvert að frumútboðið í fyrra hafi ekki verið gert upp hérna í þessum sal þegar verðmæti í eigu ríkisins voru seld á undirverði. Verðmæti í eigu ríkisins voru seld á undirverði — þetta eru hlutabréf sem í dag eru hátt í 30 milljörðum meira virði en þau voru þá og það hefur engin þingleg umræða farið fram til að draga einhvern lærdóm af þessu. Það kom skýrsla frá fjármálaráðherra um söluna, um frumútboðið. Hún hefur aldrei verið tekin hér á dagskrá í þinginu. Salan á eignum almennings heldur áfram án þess að það komi Alþingi við, eða þannig er látið.