152. löggjafarþing — 55. fundur,  23. mars 2022.

um fundarstjórn.

[15:07]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P):

Herra forseti. Hvað sem okkur þykir um einkavæðingu banka þá hlýtur alltaf að skipta máli hvernig það ferli fer fram. Mig langar að rifja upp það sem fulltrúi Pírata í fjárlaganefnd skrifaði í áliti sínu um skýrslu varðandi fyrsta útboð á hlut ríkisins í Íslandsbanka þar sem hann segir að það frumútboð hafi klúðrast algerlega frá sjónarhóli almennings. Við öll töpuðum þá 27 milljörðum í vasa þeirra sem keyptu. Það er ekki við kaupendurna að sakast heldur við ráðherra sem stillti útboðinu þannig upp. Sami ráðherra, eftir að þetta kom í ljós, gaf, eins og kom fram áðan, rúmlega 2 milljarða afslátt í næsta útboði, sem í ofanálag var svo vanmetið að í dag er eignarhluturinn búinn að hækka um 5%. Kaupendurnir eru í þetta skiptið, á einum degi, búnir að fá um 10% ávöxtun. Það er peningur sem almenningur átti í gær.