um fundarstjórn.
Virðulegur forseti. Ég tek undir nauðsyn þess að þessi sala sé rædd hér í þingsal og tel ég að við ættum að vinna í því að koma henni sem fyrst á dagskrá. Eins og komið hefur fram þá er veittur afsláttur ríkisstjórnarinnar af þessum eignum almennings, eignum sem almenningur hefur fengið arð af sem hefur greitt samneysluna, sem hefur verið að hjálpa okkur við að greiða fyrir heilbrigðisþjónustu og velferðarþjónustu, lagningu vega o.fl. Það að ríkisstjórnin taki ákvörðun um að veita kaupendum ríflegan afslátt upp á einhverja milljarða — auðvitað þarf að ræða það hér hvað veldur því að ríkisstjórn sem á að starfa í þágu almennings tekur ákvörðun um svona hluti. Ég óska eftir því að forseti setji þetta mál á dagskrá sem allra fyrst.