152. löggjafarþing — 55. fundur, 23. mars 2022.
um fundarstjórn.
Forseti heyrir hvað hv. þingmaður segir og mun fara yfir það með hvaða hætti hægt er að koma við umræðu um þetta þannig að það þurfi ekki að eiga sér stað undir fundarstjórn forseta. Þingmanninum til upplýsingar má líka geta þess að hér á eftir er dagskrárliðurinn störf þingsins þar sem hægt er að ræða aðkallandi mál sem upp koma í samfélaginu og í fyrramálið er óundirbúinn fyrirspurnatími þar sem m.a. hæstv. fjármálaráðherra situr fyrir svörum.