152. löggjafarþing — 55. fundur,  23. mars 2022.

um fundarstjórn.

[15:11]
Horfa

Ásthildur Lóa Þórsdóttir (Flf):

Virðulegi forseti. Já, salan á þessum banka tók rétt um þrjá tíma. Það er augljóst hver forgangsröðunin er hjá ríkisstjórninni. Þetta þurfti að keyra í gegn, þessu lá á, vegna þess að fjárfestarnir þurfa jú að geta grætt. Svo langar mig bara aðeins í þessu samhengi að minnast á þingmálaskrána, þar er ekki eitt einasta mál frá ríkisstjórninni varðandi hagsmuni heimilanna og varðandi það að hjálpa þeim í gegnum það sem fram undan er þegar verðbólgan stefnir í tveggja stafa tölu. Það er ekki einu sinni hægt að taka húsnæðisliðinn úr vísitölunni. Það er ekki einu sinni hægt að frysta í eitt ár verðtryggingu á lánum og leigu. Samt er hagnaður bankanna eins og við vitum öll og Félagsbústaðir högnuðust um 18,5 milljarða á síðasta ári og Alma um 12,4 milljarða. Er ekki einhvers staðar þarna borð fyrir báru frekar en hjá heimilunum?