um fundarstjórn.
Virðulegi forseti. Ég vil í tilefni af þeirri umræðu sem hefur verið hér undir störfum þingsins bara lýsa því yfir að við viljum endilega fá umræðu um framkvæmd sölunnar. Ég vek athygli á því að þetta er ekki eitthvað sem gerist á nokkrum klukkustundum. Þetta er sala sem á sér margra mánaða aðdraganda, m.a. með aðkomu þingsins. Svo virðist sem margir hafi ekki áttað sig á því hvað Bankasýslan var að boða þegar hún boðaði að salan færi fram með tilboðsfyrirkomulagi sem hlaut alltaf að þurfa að gerast á milli þess að markaðir lokuðu þar til þeir opnuðu næsta dag. Það var nákvæmlega það sem gerðist. Þegar við veltum því fyrir okkur hvort það hefði mögulega verið hægt að fá hærra verð þá þurfum við aðeins að spyrja okkur hvort við meintum það sem við sögðum, a.m.k. get ég sagt fyrir mitt leyti að ég meinti það sem ég sagði, að ég legði áherslu á margt annað heldur en eingöngu bara hæsta verð. Ef maður leggur eingöngu áherslu á hæsta verð þá er maður sáttur við að allur hluturinn fari til eins aðila sem er tilbúinn til að borga mest. En við vildum tryggja dreifða eignaraðild. Við vildum að þetta yrði heilbrigt eignarhald fyrir framtíð bankans og það þýðir m.a. að þú leggur þig ekki eftir langhæsta verðinu enda hefur svona fyrirkomulag, svona sala aldrei farið fram án afsláttar neins staðar í heiminum.