152. löggjafarþing — 55. fundur,  23. mars 2022.

um fundarstjórn.

[15:16]
Horfa

Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir (P):

Herra forseti. Mig langaði að nefna það sem hæstv. forseti sjálfur nefndi hér áðan varðandi það hvernig þetta hafi með fundarstjórn að gera. Ég persónulega er búin að fá skilaboð frá þremur mismunandi aðilum í morgun um hvort ekki eigi að ræða þetta mál í þinginu í dag og tek undir það sem hér hefur verið sagt að þetta er ekki á dagskrá þingsins. Jú, hægt er að taka þetta upp utan dagskrár og slíkt en það er augljóst að þjóðin vill fá svör strax og upplýsingar um hvernig það bar að að 27 milljarðar fóru úr vasa þjóðarinnar til — ja, hver veit?