152. löggjafarþing — 55. fundur,  23. mars 2022.

um fundarstjórn.

[15:17]
Horfa

Jóhann Páll Jóhannsson (Sf):

Virðulegi forseti. Ég get í sjálfu sér alveg tekið undir það sem fram kom í máli hæstv. ráðherra hér áðan og það er ekkert óeðlilegt að það sé veittur einhver afsláttur í svona tilboðsfyrirkomulagi. Það sem vekur hins vegar undrun er það hve mikill afsláttur er veittur þegar við erum að tala um söluna þar sem umframeftirspurnin er alveg gríðarleg. Ég held að við verðum líka að horfast í augu við að það ríkir ákveðið vantraust gagnvart þessu ferli vegna þess hvernig staðið var að sölunni í fyrra þar sem farið var af stað í miðjum heimsfaraldri þegar það ríkti alveg gríðarleg óvissa um efnahagslega þróun og þróun á eignamörkuðum. Það liggur alveg fyrir að sá hlutur var seldur á undirverði ef við skoðum bara gengið eins og það hefur þróast síðan, þannig að það er ekki að ástæðulausu sem við köllum eftir þinglegri umræðu um þetta undir liðnum um fundarstjórn forseta. Hæstv. ráðherra hefur svo sem skilað skýrslu um fyrsta fasa bankasölunnar en það er eðlilegt að sú skýrsla fái einhverja þinglega umræðu hér, að þessi fyrsti fasi sé gerður upp áður en haldið er áfram o.s.frv.