um fundarstjórn.
Herra forseti. Við gleymum því kannski stundum að það eru þrír flokkar í ríkisstjórn þó að í efnahagsmálum ráði einn þeirra öllu. Þegar verið er að selja hlut í einum af bönkunum sem komu til ríkisins í kjölfar hrunsins — þetta kom ekki til af góðu og átti aldrei að vera varanlegt ástand — þá er samt við hæfi að líta á öll glötuðu tækifærin sem ríkisstjórnin missti af til að endurmóta fjármálakerfið á síðustu árum í þágu heimilanna í landinu, í þágu almennings, t.d. að byggja upp samfélagsbanka — talandi um flokkana þrjá í ríkisstjórn þá eru tveir þeirra með samfélagsbanka á stefnuskránni sinni. En, nei, Sjálfstæðisflokkurinn vill það ekki. Hann vill frekar að bankarnir þjóni smærra samfélagi fjármagnseigenda sem eru vildarvinir flokksins sem fá þarna í fyrstu lotu 27 milljarða sem almenningur hefði getað gert eitthvað með, og hafa núna fengið 10% ábót á það sem var selt til þeirra í gærkvöldi. Það er, eins og ég sagði áðan, peningur sem hefði mátt nýta í samfélagið en ekki til að fóðra vasa fjármálaaflanna. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)