um fundarstjórn.
Virðulegur forseti. Við búum við það réttarástand að það er bannað að uppnefna erlenda þjóðarleiðtoga á Íslandi. Við sem hér stöndum njótum þinghelgi, eins og hv. þm. Andrés Ingi Jónsson kom inn á hér áðan. Þar af leiðandi gat ég kallað fyrrverandi Bandaríkjaforseta rasista og annað því um líkt í þessum ræðustól. En almenningur má ekki lýsa skoðunum sínum á illvirkjanum Vladimír Pútín eða öðrum þjóðarleiðtogum sem fremja jafnvel stríðsglæpi, án þess að eiga yfir höfði sér refsingu. Þetta er úrelt löggjöf. Það hefur oft verið reynt að breyta henni en einhverra hluta vegna hefur verið gríðarleg tregða til þess. Auðvitað verndum við erlend sendiráð og öryggi þeirra og starfsmanna þeirra. Það er okkar grunnskylda í samfélagi þjóðanna. En við leyfum okkur að tala frjálslega um þau illvirki sem framin eru af erlendum þjóðhöfðingjum. Þeir eiga ekki skilið neina sérstaka vernd fyrir umtalið um þau illvirki sem þeir fremja. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)