152. löggjafarþing — 55. fundur,  23. mars 2022.

um fundarstjórn.

[16:03]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P):

Herra forseti. Aðeins að bæta við vegna þess að staðan er gríðarlega alvarleg. Rússnesk sendiráð um allan heim eru þessa dagana lítið annað en falsfréttamaskínur. Það að fulltrúar rússneskra stjórnvalda hér á landi sjái ástæðu til að finna að því að leiðtogi stjórnmálaflokks tjái sig með skýrum hætti um þau brot sem eru að eiga sér stað í Úkraínu, að undirlagi illvirkjans Vladimírs Pútíns, er alvarlegt. Og að við höfum ekki enn haft dug í okkur til að taka móðgunarákvæði 95. gr. hegningarlaga út úr lagabálkinum, það er til skammar fyrir þingið. Ég velti því fyrir mér hvort forseti ætti kannski að beina því til allsherjar- og menntamálanefndar að koma hið snarasta með frumvarp þess efnis til þingsins að þurrka þennan bókstaf út, sem lætur móðgunargjarna brjálæðinga í Kreml njóta aukins réttar á móti tjáningarfrelsi einstaklinga á Íslandi. (Forseti hringir.) Þetta getur ekki gengið.