152. löggjafarþing — 55. fundur,  23. mars 2022.

um fundarstjórn.

[16:04]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P):

Virðulegur forseti. Ég vildi bara bæta því við að hv. þm. Steinunn Þóra Árnadóttir á einmitt slíkt frumvarp, sem ég man eftir að hafa unnið í allsherjar- og menntamálanefnd, sem mætti vel vekja upp aftur. Og ef hún er ekki viljug til þess þá hvet ég hv. allsherjar- og menntamálanefnd til að taka það upp að eigin frumkvæði. Þær fáu mótbárur sem komið hafa gegn því að taka þetta ákvæði úr sambandi eru að þar með værum við einhvern veginn að fara að gegn okkar alþjóðlegu skuldbindingum gagnvart Vínarsáttmálanum svokallaða, sem fjallar um samskipti ríkja í alþjóðasamfélaginu og vernd sendiráða, sem er vissulega mikilvæg og er ástæðan fyrir því að við þurfum núna t.d. að vakta rússneska sendiráðið. Okkur ber einfaldlega skylda til þess samkvæmt þjóðarétti. En okkur ber engin skylda samkvæmt þjóðarétti til að tryggja æru morðóðra þjóðarleiðtoga. Það er ekki þannig. Það er alveg skýrt af dómasögu Mannréttindadómstólsins að eftir því sem valdið er meira þá þurfa leiðtogar allrar álfunnar (Forseti hringir.) að sætta sig við harðara umtal. Það er algerlega skýrt. Þessi lög eru því tímaskekkja og það á að breyta þeim.