152. löggjafarþing — 55. fundur,  23. mars 2022.

um fundarstjórn.

[16:06]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V):

Virðulegur forseti. Ég vildi bara koma hingað upp og taka undir það sem fram kom í fyrstu ræðu hv. þm. Andrésar Inga Jónssonar. Mér finnst það vel til fundið að vekja athygli á þessu með þessum hætti. Mig langar að benda á að það sem kemur fram hjá sendiherranum er til að mynda að þarna sé íslenskur ráðherra að skipta sér af innanríkismálum Rússlands. Það er nú ein hugsanavillan og -skekkjan, innrás í annað ríki er innanríkismál Rússlands. Síðan kemur líka fram að stjórnvöld í landinu þar séu lýðræðislega kjörin. Við vitum allt um það hvernig lýðræðið í Rússlandi virkar, þannig að hér er enn ein hugsanavillan og alveg vel hægt að heimfæra það undir orð hv. þingmanns um að þetta sé falsfréttaveita. Og síðan það að það sé ekki íslenskra ráðherra að ákveða hver sé við völd í Rússlandi. Það er hins vegar íslenskra ráðamanna og íslenskra alþingismanna að tala hátt og skýrt þegar svona árás á sér stað. Ég tek undir hvert einasta orð sem kom fram hjá hv. þm. Andrési Inga Jónssyni og líka undir það sem hv. formaður Framsóknarflokksins, Sigurður Ingi Jóhannsson, sagði á þingi Framsóknarmanna um helgina.