fjáraukalög 2022.
Virðulegi forseti. Ég þakka fyrir þessar útskýringar. Það kann að vera misskilningur af minni hálfu, en ég taldi það vera svo í lögum um opinber fjármál að það væri ekki hægt að bara samþykkja það til að mynda að fara í stóra aðgerðapakka eða einhverjar aðgerðir án þess að fjárheimildir fyrir því væru samþykktar í þinginu. Varasjóðirnir og þetta svigrúm sem við höfum til staðar er t.d. ef það verða einhverjar skekkjur og annað í útgjöldum, launaliðum, verðbólgu og þess háttar. Það kann að vera misskilningur hjá mér að hægt sé að keyra í gegn hér stór verkefni án þess að samþykkja fjárauka fyrir það fyrir fram.
Varðandi húsnæðisliðinn eru bara mjög mörg heimili í landinu sem eru með verðtryggð lán og finna mjög mikið fyrir þessum húsnæðisverðshækkunum í hverjum einasta mánuði í verðtryggingunni. Þetta er að éta upp þeirra eigið fé þannig að ég get ekki tekið undir þetta sjónarmið. En mig langaði til að varpa þeirri spurningu fram í lokin til hæstv. fjármálaráðherra hvort hann geti staðfest að einhver vinna, formleg vinna, sé í gangi við að undirbúa viðbrögð, eða er verið að bíða þar til síðar í sumar? Munum við þá kannski bíða fram að jólum þar til eitthvert þingmál kemur sem mun mögulega verða samþykkt níu mánuðum síðar, líkt og í Covid þegar var beðið í marga mánuði eftir að samþykkja úrræði? Eða eru hilluvörur, aðgerðir, til staðar nú þegar í ráðuneytinu sem er hægt að hleypa af stokkunum um leið og þessi gullna verðbólguprósenta dettur í hús?