fjáraukalög 2022.
Forseti. Hæstv. fjármálaráðherra talar um að þetta hefði verið niðurstaðan til að ná fram ákveðnu jafnvægi í áherslu. Ég held þetta hafi snúist um jafnvægi og valdahlutföll og þess vegna séum við að horfa fram á stærstu ríkisstjórn Íslandssögunnar. Ég spurði um fordæmi og mér finnst aðeins vanta svar við því af því að þetta kostar jú ríkissjóð 2 milljarða. Það var engin knýjandi þörf og þetta kostar peninga.
En ég vildi líka nefna að það fór fram ákveðin rýni í kjölfar hrunsins á sínum tíma. Ein af niðurstöðunum þá hvað varðar stjórnsýsluna var að ráðuneytin væru of veik vegna þess hve smá þau væru og þá var farið í að sameina. Þannig að þetta er þvert gegn faglegum ráðleggingum í kjölfar hrunsins um það hvernig mætti einmitt styrkja stjórnsýsluna og styrkja ráðuneytin. En ég vil heyra rök hæstv. fjármálaráðherra fyrir því hvaða fordæmi fjármálaráðherra er að setja hér í tali sínu um ábyrgan ríkisrekstur þegar farið er fram með 2 milljarða kr. útgjöld án nokkurrar sýnilegrar þarfar.