fjáraukalög 2022.
Virðulegi forseti. Ég held að sagan verði bara að dæma í því efni, hvernig tekst til; hvernig tekst til að koma stjórnaráherslunum til skila, hversu beittir ráðherrarnir verða, hvernig ríkisstjórnin nær árangri með sín stefnumál. Það er í raun og veru eini rétti mælikvarðinn á þessa spurningu. Ég sagði áðan að ég væri enn fullur trúar á það að við værum að gera rétt og mér finnst það skipta máli að stjórnkerfið virki ofan frá. Ég tek undir þegar hv. þingmaður rifjar upp að ráðuneytin verða að vera vel mönnuð og öflugar einingar. Reyndar er ég þeirrar skoðunar að t.d. gamla velferðarráðuneytið hafi verið allt of stórt og við höfum gert hárrétt með því að kljúfa það aftur niður í velferðarráðuneyti annars vegar og heilbrigðisráðuneyti hins vegar. Ég hef ekki séð annað en að heilbrigðisráðherra á hverjum tíma hafi haft meira en nóg að gera án þess að þurfa að hafa áhyggjur af öllu því sem er á hendi félagsmálaráðherra. En svo má alveg taka umræðu um hitt og ég vil ekki halda því fram að við höfum fundið upp hina endanlegu lausn á því hvernig Stjórnarráðið er samsett.