152. löggjafarþing — 55. fundur,  23. mars 2022.

fjáraukalög 2022.

456. mál
[16:31]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Það er hárrétt hjá hv. þingmanni að gera má ráð fyrir því að það falli til talsvert mikill kostnaður vegna stríðsátaka og komu flóttamanna. Reyndar sýnist mér að jafnvel þótt við myndum horfa fram hjá því sem hefur verið að gerast vegna stríðsátakanna hafi fjöldi flóttamanna sem óskað hefur eftir því að fá alþjóðlega vernd á Íslandi farið fram úr því sem vonir stóðu til eða væntingar voru um nú þegar á árinu og hefur orðið töluvert mikil breyting á fyrstu vikum og mánuðum. Þar fellur til gríðarlega mikill kostnaður. En þrátt fyrir þetta er ekki ástæða til að hafa áhyggjur af því að við getum ekki fjármagnað þá þjónustu sem þetta kallar á. Við höfum til þess úrræði og getum eftir atvikum síðar á árinu sótt frekari fjárheimildir ef þess reynist þörf.