152. löggjafarþing — 55. fundur,  23. mars 2022.

fjáraukalög 2022.

456. mál
[16:32]
Horfa

Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Er hæstv. ráðherra þá að segja að það sé til sjóður? Ertu til peningar einhvers staðar tilbúnir í verkefni sem þetta? Ég held svo sem að enginn hafi átt von á þessu, en ef svo er þá er það gott. Engu að síður vil ég ræða aðeins meira um þennan aukaráðherrastól, og nú er ég bara að tala um auðvaldsflokkana hérna. Við í Flokki fólksins erum að hugsa um þá sem minna mega sín. Hefði ekki verið hægt að finna aðra leið en að bæta við einum stól í viðbót? Hann kostar ekki mikið í stóra samhenginu en kostar samt sitt og það hefði mátt gera ýmislegt fyrir þann pening.

(Forseti (LínS): Forseti vill minna hv. þingmann á að stíga ekki í ræðustól fyrr en kynningu er lokið.)