fjáraukalög 2022.
Virðulegi forseti. Já, það er þetta með fjölda ráðherranna, það er alveg gild spurning hversu margir þeir eiga að vera. Ég hef reyndar mjög gaman af því að taka þá umræðu og held að við ættum kannski að gera það oftar að velta fyrir okkur fjölda kjörinna fulltrúa. Ég hef t.d. oft verið hlynntur því að ræða hvort við séum mögulega of mörg hérna á þinginu. Það má líka velta því fyrir sér. Ég er alveg sannfærður um að það er víða hægt að ná fram sparnaði í stjórnkerfinu án þess að fækka um einn ráðherra, jafnvel gætum við, og ég hef verið að tala fyrir því hér í dag, náð meiri árangri í því að fara betur með opinbert fé með því að vera með vel skipaða ríkisstjórn með ráðherra í hverju ráðuneyti sem ræður við sín verkefni og hefur skýrt umboð og skýrar hugmyndir um það hvert hann vill stefna. Með því gætum við á endanum sparað margfalt fyrir nýjum ráðherra.