fjáraukalög 2022.
Frú forseti. Ég ætla svo sannarlega að vona að það verði þá frekar sóttir fjármunir. En auðvitað verðum við að hafa það í huga að fyrir kosningar töluðu ríkisstjórnarflokkarnir um fjármálaáætlunina sína og ef hlutirnir myndu ekki þróast á besta veg þá væru þarna um 100 milljarðar sem þyrfti að stramma saman og skera niður. Við skulum vona að þær nauðsynlegu aðgerðir sem þarf að ráðast í bitni ekki á einhverjum öðrum sem þurfa á þjónustu að halda. Út af fyrir sig skal ég alveg hafa umburðarlyndi fyrir því að það hafa verið margir fjáraukar og að fjárlög hafi ekki alveg gengið eins og áætlað var vegna þess að hér hafa náttúrlega orðið atburðir sem voru algjörlega ófyrirsjáanlegir og sannarlega ekki hæstv. fjármálaráðherra að kenna, eins og t.d. Covid. Og hér sjáum við annan atburð sem er fyrirsjáanlegri, en samt vonuðum við í lengstu lög að það myndi ekki gerast, sem er styrjöld í Evrópu. Það breytir því ekki að hlutverk fjármálaráðherra og ríkisstjórnarinnar er að skoða vörðurnar og hættumerkin og breyta þá kúrsinum samkvæmt því. Ef skipstjóri er að sigla inn fjörð og horfir á sjókort og það er ekkert sker á kortinu en hann sér það fram undan, þá stýrir góður skipstjóri fram hjá skerinu en trúir ekki kortinu. Um það snýst þetta. Hæstv. ríkisstjórn verður einfaldlega að sýna meiri framsýni og fara að horfa til framtíðar en ekki alltaf að bíða með að fá vandamálin í hausinn og helst leysa þau svo daginn eftir.