fjáraukalög 2022.
Frú forseti. Nú dregur hv. þm. Þórhildur Sunna Ævarsdóttir upp svo skuggalega mynd af þankagangi ríkisstjórnarinnar að mér fallast nánast hendur og þori varla að gera þær að mínum, nema vegna þess að það er auðvitað búið að ræða þetta í einn mánuð og ríkisstjórnin hefur ekki komið með nein svör við þessari gagnrýni þannig að maður gæti auðvitað freistast til þess að trúa að þau væru einhvern veginn að reyna að nota ferðina eins og það heitir. Það út af fyrir sig er óhuggulegt og svo pólitískt vænt þykir mér nú um tvo af þessum þremur ríkisstjórnarflokkum að ég vil eiginlega ekki trúa því að það muni takast. En við skulum sjá til.
En það er auðvitað alveg rétt hjá hv. þingmanni að fjárhagsaðstoðin er mjög lág og dugar auðvitað engum til framfærslu og er okkur ekki sæmandi. Ég hefði trúað því að þetta væri einmitt ákjósanlegur tími, þó að það þurfi vissulega að vinna hratt, til þess að fá einhvern betri botn í þessi mál hér á Íslandi vegna þess að það liggur fyrir að velflest sveitarfélög á landinu munu þurfa að axla ábyrgð og munu gera það með glöðu geði. Það hafa verið þrjú sveitarfélög sem hafa verið í þessum samningi. Núna mun þeim fjölga og þá verður auðvitað að laga hann og gera upp við þau sveitarfélög sem eru búin að standa sína vakt.