152. löggjafarþing — 55. fundur,  23. mars 2022.

fjáraukalög 2022.

456. mál
[17:30]
Horfa

Jóhann Páll Jóhannsson (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Það er svo margt sem væri hægt að taka á í fjáraukalögum enda eru allar meginforsendur fjárlaga þessa árs brostnar. Það þurfa t.d. að vera mjög afgerandi fjárheimildir fyrir aukinni þjónustu við flóttafólk frá Úkraínu, a.m.k. ef stjórnarmeirihlutanum er einhver alvara þar, ef við ætlum virkilega að opna arma og standa vel að þessum verkefnum. En í staðinn erum við að dúlla okkur hérna við að ræða um tilfærslu á útgjöldum milli ráðuneyta. Þetta er uppstokkun sem stjórnarmeirihlutinn hefur verið að vandræðast með, þetta hefur tafið ákveðin þingmál og svoleiðis, það hefur komið fram á nefndarfundum. Ég vil kannski bara fá að spyrja hv. þingmann, sem hélt einmitt svo ágæta ræðu hér um forgangsröðun á vakt þessarar ríkisstjórnar og um mikilvægi þess að verja viðkvæma hópa: Hvað finnst hv. þingmanni um þá forgangsröðun sem birtist í því að við séum að ræða fjáraukalagafrumvarp af þessu tagi hér í dag?