fjáraukalög 2022.
Virðulegur forseti. Verkalýðshreyfingin hefur í gegnum tíðina talað fyrir því að ekki væri sýknt og heilagt verið að breyta hlutföllunum, að greiðslur út úr tilfærslukerfunum fylgdu launaþróun og persónuafslátturinn fylgdi launaþróun og barnabætur væru hækkaðar til samræmis við og fylgdu verðlagi þannig að ríkið væri ekki alltaf að taka meira og meira til sín. Við sjáum líka, af því að hér er oft rætt um stöðu öryrkja og eldri borgara sem eru tekjuskertir í bak og fyrir, að þessir hópar verða illa úti þegar staðan er þessi. Þeir ráða illa við að fá á sig nokkurra þúsunda króna breytingu í útgjöldum, fólk sem er í þeirri stöðu að kvíða hverjum mánaðamótum og nær illa að komast í gegnum mánuðinn. Það er auðvitað hin alvarlega staða sem við þurfum að horfa til og breyta.