fjáraukalög 2022.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir hennar andsvar. Ég er ekki dómbær á það hvort alvaldið liggi hjá hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra en það má svo sem leiða að því líkur því að það er eins og ekkert gerist fyrr en fjármálaráðuneytið eða fjármálaráðherra hefur gefið grænt ljós á hlutina. Eins og hv. þingmaður nefnir þá er búið að tala hér fjálglega undanfarnar vikur um möguleika til tekjuöflunar sem gætu komið íslensku samfélagi til góða en ekkert af því verður að veruleika. Auðvitað hefði verið hægt að skrifa inn í þennan fjárauka sem við erum að ræða hér nýjar tekjur sem væri þá hægt að ráðstafa. En það er bara ekki gert. Manni finnst þetta sérstakt. Ég vil líka nefna að minni hlutinn er búinn að leggja fram fjölda tillagna. Ég vil t.d. nefna Flokk fólksins sem er búinn að leggja fram mýmargar tillögur til að styðja við þá hópa sem eiga um sárt að binda og síðan hefur minni hlutinn sameinast um ákveðnar þingsályktunartillögur sem eru bara settar niður í skúffu og þetta kemst ekki í gegn. Bunkinn sem minni hlutinn er búinn að leggja fram hefur hækkað verulega en við sjáum ekki að eitthvert sérstakt tillit sé tekið til þess. Þannig að jú, væntanlega hefur fjármálaráðuneytið og fjármálaráðherra talsverð ítök í því hvernig fjármagni er ráðstafað. En ég ætla að vona að einhverjir ráðherrar hafi (Forseti hringir.) dug í sér til að standa fyrir og vinna að þeim málefnum sem eru þeim hugleikin.