fjáraukalög 2022.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Mig langaði í þessu samhengi að benda á alla þessa umræðu um kaupmáttaraukningu sem hefur átt sér stað á tímabili þessarar ríkisstjórnar. Nú var fjárlaganefnd að samþykkja það fyrir jól að halda áfram með kjaragliðnun milli almenna markaðarins og eldri borgara og öryrkja. Þar eru einstaklingar sem fengu 4,6% hækkun á laun sín, í rauninni, einstaklingar sem ekki hafa verkfallsrétt. Það er eins og fjármálaráðherra sé ekki læs á þessa viðkvæmu hópa sem við erum að tala um. En mig langaði til að skipta um kúrs og velta upp þessari stöðu, þessu dúlleríi, í tengslum við ráðuneytin. Nú hefur engin greining verið gerð á þessum ráðstöfunum. Það eru 120 milljarðar sem flytjast þarna milli. Nú hefur hv. þingmaður talsverða reynslu af sveitarstjórnarstörfum. Er þetta verklag sem til að mynda fólk í sveitarstjórnum gæti leyft sér, að fara í ráðstafanir eða breytingar á 10% af rekstri sínum á nokkrum vikum án þess að bera það undir neinn eða fara í einhvers konar greiningar- eða stefnumótunarvinnu? Er þetta verklag sem tíðkast víðar að hans mati?