fjáraukalög 2022.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir. Þessi ríkisstjórn hafði nægan tíma þegar hún var mynduð. Frá því að kosningarnar voru þar til að ný ríkisstjórn var mynduð leið dágóður tími. Maður hefði svo sem getað gert sér í hugarlund að þau væru þá komin með þennan grunn nema þetta hafi bara smollið saman á síðustu metrunum, ég veit ekkert um það, en þá kannski einmitt með þeirri tilfærslu að hægt var að búa til þetta ríkisstjórnarsamstarf með því að fjölga stólum og koma öllum þeim sem þurfti að koma fyrir á sinn bás.
Innviðaráðuneytið var komið í umræðu á síðasta kjörtímabili og við vorum nokkuð meðvituð um að þar væri á ferðinni eitthvað sem væri jákvætt, þarna væri verið að færa ákveðna hluti á einn stað sem þyrftu að vera þar, þannig að það væru styttri boðleiðir. Við skildum það og sáum það svo raungerast í þessum stjórnarsáttmála, það varð að veruleika, og mér fannst það bara fínt. En ég skil ekki það að búa til eitthvert menningar- og viðskiptaráðuneyti upp á 28 milljarða. Viðskiptahlutir hefðu getað verið hjá fjármálaráðherra sjálfum. Það læðist að manni sá grunur að umgjörðin hafi verið búin til svona til að fjölga stólum og koma fólki fyrir.