152. löggjafarþing — 55. fundur,  23. mars 2022.

fjáraukalög 2022.

456. mál
[17:48]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P) (andsvar):

Frú forseti. Já, það nefnilega gerist ýmislegt þegar verið er að gera þetta svona eftir á. Ég hnaut um það í frumvarpinu að fjölmiðlun hefði einhvern tímann heyrt undir matvælaráðuneyti. Það er góð spurning hvernig það endaði en ég hef nú víst fengið einhverjar skýringar á því.

En við erum að tala um það að við virðumst vera rosalega hægvirk hérna á þinginu og í ríkisstjórninni. Það tók fimm mánuði að koma með raunverulega skiptingu á milli ráðuneyta. Mörgum hefur verið tíðrætt um breyttar forsendur. Það hefur verið talað um að það eigi að gefa meiri tækifæri til að kaupa rafbíla, það er að koma flóðbylgja af flóttamönnum, húsnæðismálin, það þarf að tækla þau, verðbólguna. Ætli við verðum í því að búa til fjáraukalög fyrir það eftir fimm mánuði eða tíu? (Forseti hringir.) Hvað finnst hv. þingmanni um það hvað við erum langt á eftir í að bregðast við því sem er að gerast allt í kringum okkur þegar kemur að fjármálum?