fjáraukalög 2022.
Virðulegur forseti. Það var svo sem engin bein spurning í þessu heldur meira almennar hugleiðingar um þessi mál. Ég árétta það sem ég sagði hér áðan, þessi bendileikur, sem verið hefur um það hverju er um að kenna varðandi það að húsnæðisverð hafi hækkað mikið, er svolítið hvimleiður ef við skoðum það bara út frá sjónarhóli þess fólks sem verður síðan fyrir hækkununum. Þegar menn eru að byggja húsnæði og búa til framboð af húsnæði þá tekur það langan tíma, en vextir hér lækkuðu skarpt ofan í ákveðið ástand og það hefur síðan þrýst eignaverðinu upp, en það er ekkert hægt að kenna bara skipulagi eins sveitarfélags um að svo hafi farið.