fjáraukalög 2022.
Frú forseti. Þetta var eitt af því sem ég var að nefna í ræðu minni. Ég gleymdi svo sem að taka það fram að það var auðvitað eitt af leiðarstefjunum upp úr hruninu og skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis að ráðuneytin ættu að vera færri og sterkari. Það myndi skila sér í bættri stjórnsýslu og örugglega í betri meðferð fjármuna og sterkari stöðu þeirra einstaklinga sem undir ráðuneytin heyra, þeirra hópa sem eiga sitt undir þeim málaflokkum. Þetta var auðvitað bara gert vegna þess að pólitískt landslag kallaði á að það þyrfti, að því er menn töldu, að fjölga stólum. En það hefði vel verið hægt að fara hina leiðina, að fækka ráðuneytum, tryggja valdahlutföllin innan ríkisstjórnarinnar með þeim hætti og ég er farinn að hallast að því að það hefði skilað sér í bættri meðferð fjármuna. En síðan má líka vekja athygli þingheims á því og rifja upp að stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd ætlar að kalla (Forseti hringir.) eftir stöðuskýrslu þegar aðeins lengri tími er liðinn til að sjá hvernig til hefur tekist við þessa uppstokkun alla og þá gefst örugglega tækifæri til að fara betur ofan í saumana á peningahliðinni í því.