152. löggjafarþing — 55. fundur,  23. mars 2022.

fjáraukalög 2022.

456. mál
[18:21]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Arndísi Önnu Kristínardóttur Gunnarsdóttur kærlega fyrir þetta. Já, ég talaði um gáleysislegt tal fyrir kosningar og hef gert það áður að umtalsefni mínu og skal aðeins rökstyðja hvers vegna það er. Við vitum alveg hvert hið íslenska efnahagslögmál er, þekkjum mjög vel hvernig boltinn rúllar hér, bæði þegar kemur að verðbólgu og vöxtum. Við þekkjum það mætavel að það eru engar forsendur fyrir því á Íslandi, á meðan við erum með þennan gjaldmiðil, að geta ætlast til þess að einhverjir töfrar í hagstjórn geri það að verkum að vaxtastig hér sé að jafnaði eða til langs tíma með svipuðum hætti í nágrannalöndunum okkar og það sama eigi síðan við um verðbólguna. Þegar menn eru forystumenn í pólitík, þegar menn leiða ríkisstjórn, þurfa þeir auðvitað að tala svolítið út frá þeim raunveruleika en ekki þeirri óskhyggju sem felst í því að menn hafi fundið upp eitthvert töfraráð til að stilla þetta af með þeim hætti að við sitjum við sama borð og fólk í nágrannalöndunum þegar það er að kaupa sér fasteign, bara svo við nefnum það. Orðum fylgir ábyrgð. Einn af hvötunum fyrir þessum miklu umskiptingum frá verðtryggðum yfir í óverðtryggð lán var auðvitað það hvernig menn töluðu hér meðan vextir voru að lækka og ekki síst þegar vextirnir voru hvað lægstir. Lægstu vextir í sögunni, var endalaust sagt. Seðlabankastjóri nefndi í viðtali að hann væri að vonast til þess að við værum komin í langt lágvaxtaumhverfi. Ég veit að það fer mjög í taugarnar á mörgum þingmönnum þegar maður nefnir þetta, en lausnin út úr þessum vanda er að sjálfsögðu bara ein og hana erum við búin að margtyggja ofan í þingheim og í almennri umræðu. Hún er sú að taka upp annan gjaldmiðil.