fjáraukalög 2022.
Virðulegi forseti. Við ræðum hér frumvarp til fjáraukalaga við 1. umr. Þetta er óvenjulegur tími til að ræða fjáraukalög. Í venjulegu árferði eru þau lögð fram á síðari hluta árs til að bregðast við tímabundnum, ófyrirséðum og óhjákvæmilegum útgjöldum innan fjárlagaársins sem ekki er unnt að bregðast við með öðrum úrræðum. Þingið hefur reyndar síðustu árin alloft tekið fyrir fjáraukalög til afgreiðslu á óvenjulegum tímum; vegna falls flugfélagsins WOW air, vegna ríkisábyrgðar á lánum til Icelandair, vegna heimsfaraldurs kórónuveirunnar og efnahagsaðgerða ríkisstjórnarinnar í tengslum við hann. Núna er frumvarpið þó lagt fram út af tilfærslum fjárheimilda sem ríkisstjórnin telur þörf á vegna uppstokkunar í Stjórnarráðinu og fjölgunar ráðuneyta. Hæstv. ríkisstjórn kveður fjölgun ráðuneyta vera nauðsynlega og með leyfi forseta vísa ég í greinargerð með fjáraukalögum:
„ […] til að takast á við þau krefjandi samfélagsverkefni sem fram undan eru í samræmi við þær áherslur sem lagðar eru í stjórnarsáttmála fyrir komandi kjörtímabil.“
Með öðrum orðum er engin skýr og augljós skýring á fjölguninni gefin. Hver samfélagsverkefnin eru og hvers vegna þessi tiltekna uppstokkun styður við þau hefur einfaldlega ekki verið rökstutt.
Á það var bent í umræðum um fjárlögin fyrir árið 2022 að skipting ráðuneyta og titlar ráðherra hafi ekki á þeim tímapunkti verið í samræmi við það sem ríkisstjórnin hafði boðað og er hæstv. fjármálaráðherra þá hér að leitast við að leiðrétta það. Fjöldi ráðherra og ráðuneyta er ekki meitlaður í stein. Í raun hefur honum oft verið breytt í gegnum söguna. Ráðuneytin voru níu árin 2017–2019, þau voru átta árin 2012–2016. Nú hefur ráðherrum verið fjölgað um einn frá síðasta kjörtímabili og ráðuneytunum verið fjölgað um tvö. 12 ráðuneyti og 12 ráðherrar, sem er ekki sögulegur fjöldi, þau hafa verið 12 talsins áður, en aldrei fleiri. Þetta er því mesti fjöldi ráðuneyta sem hefur verið. Þróunin síðasta áratuginn, frá 2012, þykir mér vera til marks um pólitískan vilja sitjandi ríkisstjórnar til að blása út stjórnkerfið og stækka það og það er ákveðið áhyggjuefni. Vegna þess að fullnægjandi rökstuðningur fylgir ekki breytingunum er ekki að furða að margt fólk hafi dregið þá ályktun að eitthvað annað hafi búið að baki þeim en opinber skýring ríkisstjórnarinnar, að fjölgunin sé raunverulega til komin til að jafna valdahlutföll milli stjórnarflokkanna og liðka fyrir því að þeir hafi getað komið sér saman um áframhaldandi samstarf fjögur ár til viðbótar.
Hvers vegna skiptir það máli? Hvers vegna er mikilvægt að fullnægjandi rök séu færð fyrir fjölgun, hæstv. ráðherra? Jú, vegna þess að breytingarnar eru ekki ókeypis, hreint ekki. Í svari hæstv. fjármálaráðherra, sem barst 27. janúar sl., kemur fram að áætlaður viðbótarkostnaður ríkissjóðs umfram það sem hefði verið með óbreyttri skipan sé rúmlega 1,7 milljarðar kr. á kjörtímabilinu sem að hluta til mun síðan færast áfram á næsta kjörtímabil og þarnæsta, og út í hið óendanlega verði ekki undið ofan af þeim. Í svarinu fylgdi að þessi fjárhæð gæti til viðbótar orðið nokkru hærri ef nýta þarf svigrúm fyrir óvissu í áætluninni og ef það er eitt sem við getum verið viss um er það að áætlanir standast aldrei nokkurn tímann upp á krónu. Við vonum að endanleg útkoma sé nærri því sem lagt var upp með en miðað við orðavalið í svari hæstv. ráðherra grunar mig að um algjört lágmarksviðmið sé að ræða, að það sé næstum því öruggt að endanleg fjárhæð verði hærri og þá jafnvel, svo að ég noti orð hæstv. fjármálaráðherra, nokkru hærri. Hversu mikið vitum við ekki á þessum tímapunkti. Áætlaður launakostnaður hæstv. ráðherra og aðstoðarmanna þeirra nær yfir 770 millj. kr. á þessu ári.
Nú er ég vel meðvitaður um að lýðræðinu fylgir kostnaður en þegar hann er aukinn þá þarf að vera ljóst að nauðsyn búi að baki þeim breytingum og að þeim fylgi fullnægjandi rökstuðningur. Ríkisútgjöld hafa nefnilega þá tilhneigingu að vaxa nokkuð stjórnlaust og við sem samfélag þurfum að hafa vissu fyrir því að þjóðhagslegur ávinningur fylgi útgjaldaaukningu sem þessari. Útgjaldaaukningin vegna fjölgunar ráðuneyta er þó yfirstaðin. Hún hefur verið samþykkt af meiri hluta á þingi, ákvörðun sem að mínu mati er nokkuð langt frá því sem myndi kallast ábyrgur og skynsamlegur ríkisrekstur. Helst vildi ég sjá hana dregna til baka en fyrir því er nokkuð skýr pólitískur ómöguleiki. Fyrir vikið er það sem við ræðum hér tilfærsla fjárheimilda milli ráðuneyta og hún er líka töluverð. Eins og hefur verið farið yfir hér í ræðum í dag er heildarumfang fjárheimilda ráðuneytanna rúmlega 1.000 milljarðar kr. Sum ráðuneytanna eru í heildarsamhenginu frekar smá eða afar smá eftir breytingar. Helmingur ráðuneytanna hefur umfang sem er minna en 50 milljarðar kr. og sum þeirra eru vel undir því marki. Ég velti því fyrir mér hvort ekki sé skýrt tækifæri til samþættingar verkefna og sameiningar málaflokka og ráðuneyta til að ná fram aukinni hagkvæmni og auknum þunga málefnanna í stjórnkerfinu.
Eftir breytingarnar er umfang umhverfisráðuneytisins og nýja menningar- og viðskiptaráðuneytisins rétt um 28 milljarðar fyrir hvort. Smæðinni fylgir hlutfallslega hærri kostnaður við yfirstjórn og minna svigrúm til áhrifa. Málaflokkum er ekki sjálfkrafa betur borgið hjá smærri ráðuneytum. Þvert á móti getur smæð ráðuneyta komið málaflokkum frekar illa. Málið varðar líka framleiðni Stjórnarráðsins. Úttekt samráðsvettvangs um aukna hagsæld leiddi í ljós að framleiðni væri minni hjá ríkisstofnunum með 50 starfsmenn eða færri en hjá ríkisstofnunum sem eru með fleiri en 50 starfsmenn. Því til viðbótar eiga smáar stofnanir það til að verða undir í samkeppni um hæft starfsfólk þar sem aukin hætta er á faglegri einangrun innan slíkra stofnana og framamöguleikar fólks minni. Hér er ríkisstjórnin að fjölga smáum ríkisstofnunum án þess að skýr greining liggi fyrir um nauðsyn þess, að því er virðist.
Tilfinning mín er sú að með þessum fjáraukalögum muni ríkisstjórnin í framhaldinu auka verulega tækifæri sitt til sameiningar og aðhalds í rekstri stjórnkerfisins, t.d. með fækkun ráðuneyta. Aukin óhagkvæmni í stjórnkerfinu og rúmlega 1.700 millj. kr. viðbótarkostnaður á kjörtímabilinu kemur óhjákvæmilega niður á tækifærum ríkisins til að veita þá grunnþjónustu sem því ber að sinna að lögum og öðrum málaflokkum sem varða t.d. menntun og hagsæld þjóðarinnar. Hún kemur líka niður á svigrúmi ríkisstjórnarinnar til að draga úr erlendum skuldum og þar af leiðandi vaxtakostnaði ríkisins sem þegar er gífurlegur og gert ráð fyrir að hann muni vaxa áfram út þetta kjörtímabil.
Eftir stendur að órökstuddar breytingar á Stjórnarráðinu valda gífurlegum tilkostnaði, að öllum líkindum verri nýtingu fjár og núna tilfærslu án greiningar. En af hvaða nauðsyn? Frá því hefur ekki verið greint og tek ég undir með þeim sem hafa haldið því fram að ástæðan sé raunverulega valdabrölt milli stjórnarflokkanna. Ég trúi ekki og ég held að enginn trúi fullyrðingum um að með þessu verði betur hægt að bregðast við samfélagsverkefnum sem enginn getur í raun sagt hver eru.