152. löggjafarþing — 55. fundur,  23. mars 2022.

fjáraukalög 2022.

456. mál
[18:38]
Horfa

Dagbjartur Gunnar Lúðvíksson (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Varðandi fyrri spurningu hv. þm. Gísla Rafns Ólafssonar þá tel ég þvert á móti að það sé í raun frekari ástæða til að krefjast aðhalds í efra stjórnkerfi ríkisins, vegna þess að fjármunum sem er varið þar er ekki varið annars staðar í velferð og þá þjónustu sem ríkisstjórninni ber að veita. Þannig að ef einhvers staðar á að tryggja gott aðhald þá er það akkúrat í efri lögum stjórnkerfisins. Aftur á móti varðandi það að festa skipan ráðuneyta í lög eða jafnvel stjórnarskrá þá held ég að það sé rosalega mikilvægt að hver ríkisstjórn hafi svigrúm til að ráða sínum málaflokkum og skipan ríkisstjórnar eftir eigin höfði. En ríkisstjórnin þarf að átta sig á því að þessu valdi fylgir ábyrgð og það er ekki ásættanlegt að ráðuneytum sé fjölgað og kostnaðurinn sé aukinn einungis til þess að tryggja að ríkisstjórnin geti haldið valdastólum sínum. Það er ekki eðlileg eða góð nýting fjármagns. Þegar ríkisstjórnin beitir þessu valdi sínu, að ráða málaflokkum ráðuneytanna og fjölda þeirra, þá þarf hún að vera rosalega skýr um ástæðuna og rökstuðninginn fyrir því og við sem samfélag þurfum að treysta því að hún misfari ekki með þetta vald. Ef það hefði legið fyrir fyrir kosningar að sitjandi ríkisstjórn, sem óskaði eftir áframhaldandi umboði, ætlaði að fjölga ráðuneytum og auka kostnaðinn á þessu „leveli“ er ég ekkert viss um að hún hefði hlotið þá kosningu sem hún hlaut upp úr kjörkössunum.